Friday, January 21, 2011

! ! ! AFMÆLI ! ! !

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU GUÐRÚN GRÓA


Þessi ólátabelgur á afmæli í dag. Stelpan er orðin hvorki meira né minna en 22 ára gömul. Elskan hóf afmælisdaginn sinn á því að keyra mig niður á BSÍ klukkan fjögur í nótt og ég var næstum búin að gleyma að hún ætti afmæli, ég hlýt að vera skelfileg systir (toppar samt ekki það þegar ég óskaði Stínu systir til hamingju með daginn á vitlausum degi, já og Lóu bestu vinkonu minni líka).

Ég vona að dagurinn hafi verið góður og endi vel :) Þú ert mesti dugnaðarforkur sem ég þekki Gógó, mín helsta fyrirmynd! :)

Knús og kossar frá Svíþjóð

1 comment:

  1. awww...takk fyrir sætabrauðsstúlka :* Saknaði þín svvooo mikið á afmæilsdeginum.

    ReplyDelete