Saturday, July 17, 2010

Vinsamlegast takið eftir !!

Á morgun, sunnudaginn 18. júlí, munu Gróa og Soffía, með diggri hjálp Helgu ,vera með bás í kolaportinu. Þetta er eitthvað sem enginn vill, getur né má missa af. Því ættu allir að mæta á morgun og gera kaup lífs síns. Þeir sem hafa önnur plön hafa núna góðan klukkutíma til að breyta þeim.

Til sölu verður einungis hágæða vara: kjólar, bolir, bils, veski, skór og margt fleira. Sjón er sögu ríkari.
Frábært verð.
Hvað er betra en eiga góðan sunnudag í kolaportinu ???
Sjáumst hress og kát :)
(Við vorum búnar að taka myndir til að sína brot af því sem verður á borðunum en blessuð myndavélin varð batteríslaus og hleðslutækið virkar ekki. Svo fólk verður að mæta á svæðið og sjá dýrðina)

3 comments:

  1. æ æ mikið hefði nú verið gaman að sjá úrvalið MOR

    ReplyDelete
  2. Já mamma þú hefur ábyggilega ekki séð helminginn af þessu svo það er síðasti séns á morgun.

    En fyrir þær sem ekki vita hvað bils eru þá er það næstum eins og pils bara miklu flottara ;)

    ReplyDelete
  3. Dem, ég trúi ekki að ég sé að sjá þetta núna!! Hefði verið gaman að kíkja á ykkur :( Hvernig gekk?

    ReplyDelete